:: Skúrkur ::Hér segir skúrkurinn frá sínum dýpstu leyndarmálum... | ||||||||||||||||||||||
| :: welcome to Skúrkur :: bloghome | sendu mer post! :: | ||||||||||||||||||||||
|
:: föstudagur, apríl 11, 2003 :: ohh ég er eins fluga og Þórhildur! ég vil mína sér flugu ;( tveir dagar, TVEIR DAGAR!!! núna get ég byrjað að láta mér hlakka til :) síðasta sýning á Hárinu búin og eina sem ég hef að hugsa um núna er að skila þessari efnafræðiskýrslu sem fyrst. Ég ætlaði að fara að spjalla við Oddnýju eða Fjölni núna en nei, það er ekki msn á þessum tölvum hérna í skólanum og ekki hægt að dánlóda því! Samt einar stórgleðifrættir, ég fékk 10 í munnlega enskuprófinu mínu :):):):: fimmtudagur, apríl 10, 2003 :: Hvað haldiði??? ekki bara það að ég er að verða frísk (held að þessi jarðfræðiferð hafi bara hjálpað) heldur er Magga vinkona líka komin með smá vefsíðu :) æði :) hún var nebblega að gera hana sem verkefni í UTN og gekk bara svona rosa vel hjá henni. núna sit ég í tölvustofunni í skólanum því ég fékk frí í söngtímanum mínum því ég kem ekki upp nokkru hljóði vegna hálsbólgu.. en svona er lífið....:: þriðjudagur, apríl 08, 2003 :: Ég held að ég sé að deyja?! stundum sé ég bara svart og stundum stend ég bara ekki í lappirnar og ég sem á að fara í eitthvað bansett jarðfræðiferðalag á morgun!! í augnablikinu er ég ágæt þar sem ég get setið hérna upprétt við tölvuna og pikkað eitthvað inn en ég skal segja ykkur að það er dauði og djöfullinn sem ráða ríkjum inní manni þegar maður er með hita maður finnur allveg hvernig helvítið ólgar inní sér með allan sinn eld og hita.. ég er að kafna!! í morgun vaknaði ég og fyrst hélt ég bara að ég væri stödd í landmannalaugum eða einhverjum öðrum potti því það svoleiðis lak af mér.. yndislegt ég veit. en ég staulaðist upp og fór í sturtu. akkúrat besti tíminn til að vera veikur, ég átti að vera í prófi í gær og í dag og svo á ég að vera að skila einhverjum verkefnum og svo þessi ferð og það eru enþá sýningar á Hárinu, en það versta er að ég verð að vera frísk um helgina því þá er slaufan og svo fer ég á sunnudaginn til Norex með Sölla. úff.. ég held ég fari bara aftur að sofa, hausinn á mér er að springa!!
|
|||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||