|
|
:: föstudagur, janúar 17, 2003 ::
VÁÁÁ... sjáiði nýja flotta bakrunninn minn :)
:: Skurkur 9:49 f.h. [+] ::
...
Heyriði já.. ég var alveg næstum búin að gleyma að tilkynna nýja félagið okkar stelpnanna :) ég held að það sé komið fast nafn á það og það mun vera: Félag skurðaranna.. eða eitthvað svoleiðis!! mottóið okkar er: ,,varist skurðina!"
Þetta félag var einungis stofnað í þeim tilgangi að styðja vinkonu okkar Guðrúnu sem var að keyra uppí borgarfirði heim til sín í svakalegri hálku og (eins og Tóta segir) átti óvænt stefnumót við skurðinn.. það er nú sem betur fer allt í lagi með hana og hún komst heim til sín ómeidd (eða með litla áverka) eftir klukkutíma göngu í kuldanum! Hún á mína fylstu virðingu :)
En sem sagt var stofnfundur í gærkvöldi þegar Anna María afmælisbarn gærdagsins tók fyrsta rúntinn, en því miður var Guðrún ekki því hún á heima svo langt í burtu og hafði engan bíl því bíllinn hennar var í klessu!! en sem sagt lagði ég til á fundinum að Guðrún væri formaðurinn vegna þess sem henni tókst að gera, en Tóta sagði að hún gæti engan veginn ráðið við það þar sem hún réði ekki einu sinni við bílinn sinn?!! þá var ákveðið að hafa hana heiðursmeðlim og mér finnst hún eiga að vera lukkudýrið líka :)
Á döfinni er að hanna fána og skipuleggja sérstaka athöfn þegar fundir eða eitthvað verður gert. Næsti fundur er heima hjá Guðrúnu þarnæstu helgi þar sem hún ætlar að halda upp á afmælið sitt og allt verður vídjó-myndað :) Því miður getur engin orðið meðlimur strax í félaginu þar sem þetta er mjög lokað til að byrja með en ef þú vilt að minsta kosti gerast hálfur félagi þarftu að hafa lent út í skurð á ævintýranlegan hátt :)
:: Skurkur 7:52 f.h. [+] ::
...
Ætli ég verði ekki annað en að trúa því að bissí stóri bróðir sé kominn með sitt eigið blogg.. Mér finns að þið ættuð að skoða þetta aðeins allavega svona honum til stuðnings ;) ég styð þig að fullu brósi, upp með góða djobbið!!
:: Skurkur 7:17 f.h. [+] ::
...
:: þriðjudagur, janúar 14, 2003 ::
Litli bróðir minn kom inn í kennslustofuna til mömmu í morgun og sagði: ,,mamma ég held þú þurfir að fá þér betri gleraugu!" Þá hafði mamma sett rauðlauk í nesti hjá honum í staðinn fyrir epli?!? en hún er víst bara svona utan við sig stundum. Eins og um daginn þegar hún var að baka eitthvað.. hún var að brjóta egg og henti egginu í ruslið og skurninni í skálina, en það átti víst að vera öfugt :)
:: Skurkur 9:13 f.h. [+] ::
...
|