:: Skúrkur ::Hér segir skúrkurinn frá sínum dýpstu leyndarmálum... | ||||||||||||||||||||||
| :: welcome to Skúrkur :: bloghome | sendu mer post! :: | ||||||||||||||||||||||
|
:: föstudagur, desember 13, 2002 :: Ég er búin í prófunum.. hugsiði ykkur :) þvílígt dásemdarlíf.. getiði hugsað ykkur þetta.. ég er komin í jólafrí :) á meðan litlu grunnskóla krakkarnir (finnur litli bróðir) og grunnskóla kennar (mamma mín) og annað vinnandi fólk (fjölnir stóri bróðir og pabbi) þurfa að vakna eld snemma á mornana, rífa sig upp á rassgatinu og drattast grútsifjað út í ískuldan á meðan ég ligg sofandi heima í heitu rúminu.. hí á ykkur :D En mín klikkaða fjölskylda tók upp á því að fara í bæinn um helgina og gista á Hótel Sögu bara svona svo ég geti slappað af eftir prófin og við keypt jólagjafir og reyna að skapa smá stemmingu.. en hótel?? ekki spurja mig?!! þau fara í dag en ég gisti eina nótt hjá Tótu vinkonu og kem svo á eftir þeim á morgun með rútu.. þetta verður geðveikt..:: fimmtudagur, desember 12, 2002 :: Síðasta prófið á morgun. loksins.. ég hefði nú allveg eins vilja taka það á miðvikudaginn og vera þá bara búin í prófunum, en maður fær víst ekki að ráða neinu um það. Svo er jólastressið allveg að fara með fólk hérna á heimilinu. Mamma var allveg að fara á taugum í gær þegar hún var á síðustu stundu að pakka inn jólagjöfum og skrifa kort til að senda til útlanda svo ég hjálpaði henni og pakkaði þessu inn og fór með henni á pósthúsið en klukkan var miklu meira en hálf fimm og hún hélt að það lokaði þá. Þegar við vorum að koma að pósthúsinu voru ekki margir bílar og mamma sagði: "ohh það er búið að loka, afhverju vorum við einu sinni að reyna þetta, ég er svo viss um að það er búið að loka að ég gef þér bragðaref ef það er enþá opið." og viti menn þegar við lögðum fyrir framan var eitthvað líf þarna inni og mamma þaut í eftirvæntingu að hurðinni og þegar hún opnaði hurðina og það var ekki læst var hún svo ánægð að það var eins og pósthúsið hefði gefið henni heiminn!! og þegar hún var búin að þessu var hún eins og sprungin blaðra.. hún nennti sko ekki meiru.. Svo á miðvikudaginn náði ég í fyrsta skiptið samand við systur mína í útlandinu á msn. Þá hafði henni loksins tekist að tengja netið í þessari tölvu sem bróðir minn kom með til hennar í haust, til hamingju með það :) og við erum búin að vera á fullu að spjalla um jólagjafir handa hinum og þessum. Það var nú svoldið sniðugt í gær þegar ég var inná msn. ég var að tala við systu í Norgei, Brósa í Reykjavík og pabba í vinnunni öll inná sama spjalldálkinum, sannkallað ættarmót!! ef mamma og litli bórðir hefðu verið heima, hefðu verið nóg af tölvum fyrir þau líka því þetta er eins og tölvuver hérna heima!! það eru reyndar ekki nema 5. tölvur tengdar inná netið í augablikinu en það er meira en ein á mann fyrir þá sem eru eftir hérna af fjölskyldunni!! ég var að tala við systu inná mn áðan en hún er víst of bissí, hún er nebbla að læra á fullu fyrir efnafræðina sem hún er að taka í fjærnámi þarna úti og fer í próf á morgun eins og ég. ég ætti nú að fara að læra líka ég er ekki búin að vera alltof dugleg við það í þessu fríi mínu.. það er kannski best að fara að læra... cyaaa..
|
|||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||