:: Skúrkur ::

Hér segir skúrkurinn frá sínum dýpstu leyndarmálum...
:: welcome to Skúrkur :: bloghome | sendu mer post! ::
[::..gamalt..::]
[::..snidugt..::]
:: Aggi
:: Tota
:: Ingi
:: Magga
:: Sir Gaylord
:: Solli
:: Kolla
:: Heidrun
:: Bustolpi
:: Batman
:: Agurkan
:: Tilveran
:: Maistor T
:: Sigga Vidis
:: Eyrun Elvis
:: Bexy
:: Tinna

:: föstudagur, desember 06, 2002 ::

Ég ætti nú að fara að læra bráðum fyrir næsta próf sem er á mánudaginn en það er svo hræðilegt jafnvel bara að hugsa um það að fara að læra fyrir það.. Ég á nú bara 2 próf eftir, 4 búin, úff! ég er nú bara að pæla í því að fara frekar að horfa á sjónvarpið.. mér var nú sagt samt sagt að ungningar nú til dags eyða um 15 árum af æfi sinni í að horfa á sjónvarpið, horfa á líf annara... kannski er þetta bara kjaftæði en það var nú hinn háalvarlegi enskukennari minn hún Ludmila sem sagði þetta og ég held að það sé bara eins gott að taka mark á henni, eða allavega láta hana halda það... það er núna bara ein vika eftir af prófunum, skólanum, og þá kemst ég í langþráð jólafrí.. éss.. og það sem er enþá meira éss er að mín ástkæra systir er að fara koma heim 19. desember í fyrsta skiptið í hálft ár.. sjibbí :) Þetta verða nú samt eitthvað skrítin jól, því að núna erum við að fara að vera heima í fyrsta skiptið í sögu fjölskyldunar. þetta verður svo ójólalegt. ég og helgrind erum samt búnar að ákveða að reyna skapa saman einhverja jólastemmingu þar sem verður nógur tími eftir prófin. við ætlum kannski í bæinn að kaupa gjafir, reyna að skreyta eitthvað, baka vandræði og spila jólamúsík í botn :) ef maður nær ekki jólastemmingu með því þá er maður allveg glataður.. Ég var nú reyndar að hugleiða heimasíðugerð í fríinu því ég hef ekkert gefið mér tíma í að gera svona alvöru síðu, ekki bara svona blogg, það er minn draumur og það kemur að þessu einhverntíman...
:: Skurkur 12:38 e.h. [+] ::
...
sko hún mamma mín... ég hef ekki einu sinni orð yfir það lengur!! við sáum auglýsingu með spaugstofunni áðan og þá sagði hún allt í einu: "Ó.. við misstum af spaugstofunni á morgun!" Ég spyr hvort átti þetta að vera við misstum af henni síðasta laugardag eða við missum af henni á morgun?? er hún bara búin að gleyma hvernig á að mynda setningar eða?? hún sem á að heita íslenskukennari! þetta er að verða slæmt...
:: Skurkur 12:17 e.h. [+] ::
...
:: fimmtudagur, desember 05, 2002 ::
Ég er nú víst svolítill strumpur í mér!!!!!


Find your inner Smurf!


:: Skurkur 12:15 e.h. [+] ::
...
Ég hef aldrei vitað hvað hún mamma mín er að hugsa.. ef það er þó nokkuð!! ég heyrði hana nefninlega segja við pabba um daginn, rétt fyrir fréttir: "hvað er í fréttunum á eftir?" það þíðir víst ekki að spurja mig um hvað hún var þá að meina en ég og pabbi hlógum vel og lengi. Þetta er nú ekkert einsdæmi með þessar spurningar hjá henni, því ég var eitthvað að tala við hana um Reykjarvíkurferð með vinkonu minni henni Guðrúnu sem er ári eldri en ég, og þá spurði mamma mig: "af hverju er þessi Guðrún ári eldri en þið?" Ég vissi fyrst ekki allveg hverju ég átti að svara!!! ég meina... "af því að hún fæddist ári á undan okkur!?!?!?!?!?!?!?!?!"
:: Skurkur 11:50 f.h. [+] ::
...
Always Look On The Bright Side Of Life... dammdamm dídamm dídamm dí damm......
:: Skurkur 11:32 f.h. [+] ::
...

This page is powered by Blogger. Isn't yours? Tweet Traffic Rush!