:: Skúrkur ::Hér segir skúrkurinn frá sínum dýpstu leyndarmálum... | ||||||||||||||||||||||
| :: welcome to Skúrkur :: bloghome | sendu mer post! :: | ||||||||||||||||||||||
|
:: miðvikudagur, júlí 10, 2002 :: Systir mín er að fara að prófa útlandið.. hún er sem sagt að flytja í haust til Norex eða nánar tiltekið Osló allavega tímabundið heyrðu þá kom mamma með þessa snilldar hugmynd að kaupa slopp handa henni!!!!! ókei mamma keypti slopp en hugmyndin var eiginlega engin nema það að sloppurinn var svo ódýr!!! svo vildi systir mín ekkert hafa einhvern slopp með sér út en mömmu fannst það allt í lagi því sloppurinn var hvort eð er svo ódýr að það skipti engu máli hvort við notuðum hann eða ekki!!! hvernig væri það mamma að kaupa eitthvað handa okkur sem við notum þótt það kosti svoldið meira???? Þetta er hinn margumtalaði snillingur hún móðir mín...:: mánudagur, júlí 08, 2002 :: nú kemur helgar sagan... ég fór nebbla til ísarfjarðar um helgina en þar var harmonikkumót eins og kannski einhverjir vita sem fylgjast með fréttunum.. þetta var svoldið sniðug upplifun og öðruvísi.. ég var þarna með fjölskildunni minni og svo var bekkjasystir mín með sinni fjölskyldu með okkur og á laugardeginum kom svo 20 ára frændi minn með fullann bíl og annann af vinum sínum óvænt svo þetta var svoldið fjölmennt þarna hjá okkur. Það er nú samt svoldið sniðug saga bak við ferðina hjá þeim strákum það var þannig að þeir köstuðu pening um hvert þeir ætluðu að fara!! ég veit ekki um marga sem gera þetta! ákveða bara frammhliðin upp.. akureyri..nei...ísafjörður....já!!! en svo ég segi svoldið frá henni móður minni þá fórum við öll á harmonikkuball eitt kvöldið og klæðnaðurinn hennar mömmu var svoldið sniðugur.. hún var sem sagt í svörtum hnébuxum, bleikri peysu með bleikum fjaðrakraga einhvernveginn og vínrauðum leðurjakka!!! er til eitthvað þessu líkt spyr ég nú bara??
|
|||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||