:: Skúrkur ::Hér segir skúrkurinn frá sínum dýpstu leyndarmálum... | ||||||||||||||||||||||
| :: welcome to Skúrkur :: bloghome | sendu mer post! :: | ||||||||||||||||||||||
|
:: föstudagur, maí 24, 2002 :: Fannst ykkur þetta fyndið... mömmubrandararnir eru náttúrulega sígildir og alltaf nóg af þeim á mínu heimili!! ef þið viljið annann þá get ég svo sem sagt ykkur að í gær var mamma kennari með öðrum kennurum að reyna að læsa skólanum. Þetta er svona sjálfopnandi hurð og til að læsa henni þarf að ýta á einhvern takka innan frá.. en það voru fleiri en einn takki og ein fór út til að gá hvort hurðin opnaðist, og hún opnaðist alltaf.. svo fór mamma út og hún var svo viss um að hurðin myndi opnast að hún gekk beint á glerið!?!! svo var eitthvað fólk þarna fyrir utan að veltast um að hlátri að fylgjast með þessum ljósku kennurum!! En þetta er bara annar dagur í lífi mömmu....:: fimmtudagur, maí 23, 2002 :: Brandari dagsins.... ég veit ekki hvort þið fattið hann!! Það var mamma snillingur. Hún ætlaði að hringja í systir mína til að athuga hvar hún væri svo hún hringdi úr gemsanum sínum í hana.. svo hringdi sími systur minnar inní herbergi og mamma hljóp til að svara því hún var ekki heima og hafði greinilega gleymt símanum sínum! svo stóð hún þarna með síma á sitthvoru eyranu og sagði halló halló!! hehe.. hún skildi auðvitað ekkert af hverju engin svaraði og að hún væri að tala við sjálfa sig... En svo skelti hu á furðulostin og spurði hvort maður gæti ekki séð hver hringdi síðast svo hún gæti hringt til baka!!! Í gær fór ég í svaka útskriftarveislu í Borganesi hjá frænda mínum honum Inga. Núna annars þessa dagana má ég ekki hugsa um neitt annað en ritgerðir og verkefnin fyrir skólan en ég á að skila þeim á morgun svo að þá er ekki mikið eftir nema lokaferðin, lokaballið og útskriftin..yessssss..:: mánudagur, maí 20, 2002 :: Loksins komin heim frá Akureyri.. búin að vera þar í þrjá daga og strax farin að segja K.. AKureyri.. mjólK.. Það var svo mikil sól að ég er rauð og sæt í framan!! Við gistum hjá ömmu og afa uppá lofti í bílskúrnum en verst var að þau eru ekki með tölvu svo ég gat ekki bloggast neitt. Við fórum fimm.. mamma, systa (18 ára), vinkona hennar (líka 18), brósi (12 ára) og ég náttúrulega :)
|
|||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||